Seljavallalaug. Bara nafnið eitt dregur upp trúarlega mynd af lífsins lind undir Eyjafjöllum! Ég man reyndar eftir því í sumar leið að kona sagði við mig, að sig langaði að vera með mér einum í lauginni eftir lokun, og ekkert trúarlegt stef í því máli. Önnur og heldur andlegri mynd kom svo nýverið upp í hugann sem tengist einmitt þessum helga stað. Áhugamenn um varðveislu laugarinnar fóru í hópferð austur fyrir um ellefu árum, og þar var kominn Jón Á.Gissurarson, fæddur Drangshlíð undir Austur- Eyjafjöllum, og lengi skólastjóri gagnfræðaskólans við Lindargötu, nema hvað, Jón gott ef ekki steypti einn vegg laugarinnar sem ungur maður, og þarna um mitt sumar fyrir fjarska löngu var hann kominn aftur heim, í lífsins vatn.