Kreppa er fyrst og fremst hugarástand, Káta maskínan lifir! Ég þarf ekki nema rétt að ganga niður Öldugötuna, til að sjá hvernig á að framkvæma hlutina. Það er tvisvar sinnum búið að halda kokteilboð í gjaldþrota Tónlistarhússgrunninum, en við Garðastræti 23 láta menn verkin tala.

Þorsteinn Bergsson og Mynjavernd hafa hafist handa við að endurbyggja Vaktarabæinn, næstelsta húsið í Grjótaþorpinu, af sama krafti og dugnaði og hefur einkennt þeirra starf. Kannski verður þetta litla hús leigt út fullklárað, kannski breytt í safn eða vinnustofu, allavega: Þetta er innblástur í hversdaginn í jarðneska lífinui, þegar ríkisstjórnin hefur rispað allar LP plöturnar í partíinu og hótar að setja þjóðina á upptökuheimili ef hún er ekki til friðs.
KÁTA MASKÍNAN / Vaktarabærinn