Burkina Faso 8600 km, er heimildarmynd eftir Þorstein J. og Veru Sölvadóttur. Hún er um lausnir á tímum kreppunnar á Íslandi. Hjónin Hinrik og Gullý kaupa tvo notaða Toyotajeppa í Reykjavík og láta flytja þá í skipi til Rotterdam. Síðan keyra þau bílana alla leið til Burkina Faso, í þeim tilgangi að selja annan þeirra og fjármagna þannig skólastarf á vegum ABC hjálparsamtakanna.
Þetta er mynd um afstöðu, hvað hægt er að gera þegar ekkert virðist vera hægt að gera. Í myndinni er samanburður á því hvað er kreppa á Íslandi og í Burkina Faso í vestur Afríku, sem er þriðja fátækasta ríki heims. Inn í söguna fléttast saga Paulos, Brasilíumanns sem er búsettur á Hvolsvelli, og fylgdi Hinrik og Gullý í hjálpastarfið í Burkina Faso.

Myndin verður frumsýnd á vefnum thorsteinnj.is 25.febrúar.

Myndataka: Þorsteinn J.
Ljósmyndir: Vera Sölvadóttir / Karl R.Lilliendahl
Klipping: Þorsteinn J. og Vera Sölvadóttir.
Samsetning, litaleiðrétting: Eiríkur Ingi Böðvarsson Hljóðvinnsla: Hjörtur Svavarsson.
Burkina Faso 8600 km